Dagur 4 af 365

Góðann daginn !!! þessi dagur byrjaði heldur betur vel svaf yfir mig og var vakin með hringingu.  Ég dröslaðist á lappir og inn á bað, leit í spegilinn og sá líka þennan fallega bulldog í speglinum.  Ég er ekki að grínast andlitið hreinlega lafði niður á bringu.  Það var ekkert hægt að gera í þessu og mín von sú að þetta myndi nú allt lagast áður en langt liði á daginn, sem var svo raunin.  Ég fór úr vinnu um 11 leitið og gerði akkurat það sem ég hafði heitið að gera ekki frá og með áramótum.  Málið er það að ég las einhverja grein um einhverja konu sem ákvað að hætta að blóta öðrum bílstjórum í umferðinni og fyrir vikið losnað við haug af streitu og öðru slíku.  Þannig að ég ss. blótaði 2 bílstjórum upphátt eins og geðsjúklingur ein í bílnum.  En þetta var neyðartilfelli og eginlega bráðnauðsynlegt.  Fyrri bílstjórinn svínaði fyrir mig og sá síðari gat ekki ákveðið hvar hann ætlaði að vera á veginum sem gerði mig mjög óttaslegna og hélt ég mig í hæfilegri fjarlægð frá honum.  Þannig að það var algjörlega þörf á þessu mikil þörf.  Þegar heim var komið átti ég stund með ömmustelpunni minni meðan pabbi hennar spriklaði í ræktinni svo þegar hann kom heim fór ég og spriklaði.  Held í fyrsta sinn af mikilli ánægju á þessu ári.  Svo kraftmikil og hress eftir ræktina að ég gat unnið helling hér heima.  Hressandi !!!! Í kvöld fórum við svo fjölskyldan út að borða á Hard Rock í tilefni 23 ára afmælis yngsta sonar minn og þar varð kjella sko ekki fyrir vonbrigðumlaughing Aðeins seinni í bælið en til stóð uppgefin eftir viðburðaríkann dag.  Góða nótt kæru þið sem nennið að fylgjast með mér.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Vill nú ekki vera draga skrif þín í efa en ég er nú nokkuð viss um að þú hafir poppað þessu blessaða barni út fyrir 24 árum síðan.

P.s. hef ekkert betra við tímann minn að gera en að tuða á the internet

Maður sem á konu í vel launuðu starfi (IP-tala skráð) 5.1.2017 kl. 00:03

2 Smámynd: Hugrún Hrönn Þórisdóttir

Hahahaha er þetta sama konan og labbar í vinnuna og fær frían hádegismat :)

En það er rétt kleip óvart ár af stráknum sorrry Sindri minn :)

Hugrún Hrönn Þórisdóttir, 5.1.2017 kl. 20:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband